Photos

Klassísk íslensk kjötsúpa

Þessi uppskrift er góður grunnur — hver fjölskylda á svo sitt leyndarmál.

Hráefni (fyrir 6–8)

  • 1–1,5 kg súpukjöt af lambi (framhryggur/síða)
  • 2 l vatn
  • 1 dl hrísgrjón eða bygg
  • 1 lítil gulrófa, teningsskorin
  • 3–4 gulrætur
  • 4–5 kartöflur
  • ½ blaðlaukur eða laukur
  • Súpujurtir, salt og pipar

Aðferð

  1. Setjið kjötið í kalt vatn, hitið að suðu og veiðið froðuna ofan af.
  2. Bætið salti og grjónum út í og sjóðið rólega í 40 mínútur.
  3. Bætið rótargrænmetinu út í og sjóðið í 20–30 mínútur í viðbót.
  4. Smakkið til, hvílið í 10 mínútur — og berið fram rjúkandi heita.

Ábending: súpan er alltaf betri daginn eftir.

All recipes