Kjötsúpuhátíðin á Hvolsvelli fagnar 20 ára afmæli

Næstkomandi miðvikudag hefst Kjötsúpuhátíðin á Hvolsvelli, sem í ár fagnar tuttugu ára afmæli sínu. Hátíðin stendur yfir í fimm daga, frá 26. til 30. ágúst. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá þar sem íbúar og gestir geta gert sér glaðan dag, hlustað á tónlist og gætt sér á heitri súpu. Eins og undanfarin ár er aðgangur að hátíðinni og viðburðum hennar ókeypis.

Hátíðarhöldin hefjast miðvikudaginn 26. ágúst með upphitun í Stóru-Mörk þar sem boðið verður upp á fyrsta forsmekkinn af hátíðarsúpunni. Fimmtudaginn 27. ágúst má búast við mikilli litagleði í bænum þegar íbúar skreyta hverfin sín í sínum sérstöku hverfislitum. Um kvöldið er boðið upp á skemmtun í stóra tjaldinu þar sem Hlynur trúbador, Saga Garðars og Fríða Hansen halda uppi góðri stemningu.

Föstudagurinn byrjar á ljósbolta í íþróttahúsinu fyrir yngri kynslóðina og svo Búbbluhlaupi fyrir þá eldri síðdegis. Um kvöldið fer fram hið þekkta og vinsæla súpurölt. Þá eru íbúar og fyrirtæki í bænum dugleg við að opna dyr sínar og bjóða gestum og gangandi upp á ýmsar tegundir af heimagerðum súpum.

Laugardagurinn 29. ágúst verður þéttskipaður. Um morguninn stendur Kvenfélagið Eining fyrir flóamarkaði og kaffisölu í Hvolnum, auk þess sem Naflahlaupið verður þá ræst. Eftir hádegi fer fram fjölskylduskemmtun á miðbæjartúninu þar sem hátíðin verður formlega sett. Seinni partinn verður opin vinnustofa hjá Sigrúnu Jónsdóttur listmálara að Ásvelli í Fljótshlíð og í Sveitabúðinni Unu mun ítalsk-íslenska tríóið Delizie Italiane flytja tónlist.

Laugardagskvöldið hefst á brekkusöng undir stjórn Guðrúnar Árnýjar í tjaldinu, en að honum loknum lýsir flugeldasýning upp himininn yfir Hvolsvelli. Að lokum stígur Stuðlabandið á stokk á Kjötsúpuballinu ásamt Friðriki Dór og Páli Óskari. Vert er að taka fram að 18 ára aldurstakmark er á ballið og ekki leyft að taka áfengi með inn. KFR sér um alla veitingasölu á laugardagskvöldinu í fjáröflunarskyni.

Sunnudaginn 30. ágúst lýkur hátíðinni á rólegri nótum. Þá leiðir Ísólfur Gylfi Pálmason fræðandi menningargöngu um Hvolsvöll og vinnustofan að Ásvelli verður opin áfram fyrir þá sem vilja njóta listar. Krakkarnir fá þó eitthvað fyrir sinn snúð þann daginn en Brúðubíllinn kemur á miðbæjartúnið eftir hádegið og skemmtir þeim þar.

Við hvetjum gesti til að fylgjast vel með veðurspá og klæða sig eftir veðri. Einnig viljum við beina því til fólks að taka með sér sína eigin skeið og skál á súpuröltið til að minnka sóun. Þeir sem nota stálskeiðarnar sem í boði eru eru vinsamlegast beðnir um að henda þeim ekki í ruslið og skila í tilgerðar fötur á súpustöðum.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur á þessum tímamótum og njóta helgarinnar saman. Nánari upplýsingar og tímasetningar má finna á kjotsupuhatid.is.

All news