
Fimm dagar af skemmtun, tónlist, litum og gleði í hjarta Rangárþings eystra.
Sæktu Kjötsúpuappið, hafðu alla dagskrána í vasanum og finndu stystu leið á næsta súpustað.



Kjötsúpuhátíðin fyllir Hvolsvöll af ilmandi kjötsúpu, lifandi tónlist og samfélagsgleði síðustu vikuna í ágúst. Íbúar skreyta hverfin sín í öllum regnbogans litum, súpupottar krauma við hvert horn og fjölskyldur flykkjast á miðbæjartúnið. Allir eru velkomnir.

Kjötsúpuhátíðin á Hvolsvelli fagnar 20 ára afmæli í ár. Í tuttugu ár hefur bærinn fyllst af ilmandi súpu, litríkum hverfum og lifandi tónlist síðustu vikuna í ágúst. Afmælisárið er engin undantekning og allir eru velkomnir.

Röltu milli hverfa og smakkaðu heimagerða súpu hjá íbúum bæjarins.
Skoða súpuröltið →
Hvert hverfi fær sinn lit og keppist við að skreyta göturnar sínar.
Sjá litakort →
Tónleikar, brekkusöngur, flugeldar og kjötsúpuball fram á nótt.
Öll dagskráin →
Sprell tívolí, hoppukastalar, tónlist út um allt og fjör fyrir alla aldurshópa.
Öll dagskráin →Dagskráin er að verða full mótuð en hafið augun opin fyrir nýjum viðburðum.

Árlega Silent DISKÓ á Midgard. Til að byrja þessa kjötsúpuhátíð með stæl ætlum við að skella í "silent diskó" á Midgard fimmtudaginn 27. ágúst

Hittast í N1 Hvolsvelli (Hlíðarenda) kl 18:00 sameinast í bíla Ekið sem leið liggur inn á Hellisvelli.

Hlynur trúbadorinn okkar kemur öllum í gírinn, Saga Garðars verður með uppistand og Fríða Hansen mætir með Mamma Mia partý í tjaldið! Söngtextarnir með Hlyni eru á kjotsupuhatid.is/textar — með stærra letri og dökkum bakgrunni fyrir þá sem vilja.

Grillkynning við Búrvörubúð SS, afsláttur af völdum vörum í búðinni.

Ljósabolti (glowball soccer) verður í íþróttahúsinu, spilað er í myrkri með sjálflýsandi bolta. ATH. Sjoppan hjá 10. bekk verður á staðnum - FRÍTT INN.

Ræst frá tjaldinu á miðbæjartúninu. Aðgangseyrir ein köld 750ml freyðivínsflaska, áfeng eða óáfeng.

Íbúar og fyrirtæki taka sig saman og bjóða upp á ýmsar tegundir af súpum

Þá er komið að öðru móti af sex í Suðurlandsskjálftanum, PDGA mótaröð FGÁ! Í mótaröðinni verða spilaðir allir 18 holu vellirnir á Suðurlandi og 4 bestu mótin af 6 gilda í heildarkeppninni.

Kvenfélagið Eining verður með flóamarkað, basar og kaffisölu í stóra salnum í Hvolnum á laugardeginum 29.ágúst. Margir eigulegir munir til sölu.

Hlaupið hefst við Midgard og endar á Midgard. Nánari upplýsingar koma þegar nær dregur

Hátíðin formlega sett, skemmtiatriði og verðlaun afhent á miðbæjartúninu. Aron Can, Lína Langsokkur, Solla Stirða, BMX Bros, Bjössi Brunabangsi, Veltibíllinn á túninu ásamt ýmsu öðru fyrir krakka á öllum aldri.

Um helgi Kjötsúpuhátíðar á Hvolsvelli verður opin vinnustofa að Ásvelli í Fljótshlíð. Á laugardag frá kl. 15 til 17 og á sunnudag frá kl. 14 til 16.

Á efnisskránni eru ítalskar og íslenskar perlur og sem margir kannast við. Tónlistinni fylgja skemmtilegar sögur af lögunum.

Guðrún Árný stýrir brekkusöng í stóra tjaldinu á miðbæjartúninu. Sérstakur heiðursgestur verður Hlynur Snær Theodórsson.

Litum himininn yfir Hvolsvelli. Flugeldasýningunni verður skotið upp við íþróttasvæðið en mun sjást mjög vel við miðbæjartúnið.

Kjötsúpuballið árið 2026 verður sérdeilis frábært! Laugardagskvöldið 29. ágúst kl. 23:00 mun vinsælasta hljómsveit landsins Stuðlabandið stíga á stokk í stóra tjaldinu strax á eftir

Ísólfur Gylfi Pálmason leiðir menningargöngu um Hvolsvöll. Sagt verður frá sögu bæjarins, skemmtilegum staðreyndum og fólki.

Brúðubíllinn kemur og skemmtir yngstu kynslóðinni á miðbæjartúninu

Um helgi Kjötsúpuhátíðar á Hvolsvelli verður opin vinnustofa að Ásvelli í Fljótshlíð. Á laugardag frá kl. 15 til 17 og á sunnudag frá kl. 14 til 16.
Sæktu Kjötsúpuappið, hafðu alla dagskrána í vasanum og finndu stystu leið á næsta súpustað.


Allt það praktíska fyrir heimsóknina — bílastæði, aðgengi og hvað er gott að hafa með sér.
Aðgangur að hátíðinni og súpunni er ókeypis. Taktu samt með þér smá pening fyrir markaðsbása og góðgerðasölur.
Bílastæði eru við Hvolinn og á bakvið ráðhúsið. Eins er hægt að leggja við leikskólann. Hátíðarsvæðið er allt í göngufæri.
Ágúst á Íslandi getur verið óútreiknanlegur. Skoðaðu veðurspá. Taktu regnföt, góða skó og teppi fyrir kvölddagskrána ef hún er ekki góð.
Textarnir við fjöldasönginn eru á kjotsupuhatid.is/textar, með stærra letri og dökkum bakgrunni fyrir símann í myrkri. Í appinu kemstu beint þangað úr dagskránni: opnaðu Kvöldskemmtun eða Brekkusönginn og ýttu á „Meiri upplýsingar“.
Salerni eru opin í Hvolnum og eins verða útiklósett á miðbæjartúninu.
Súpustaðir bjóða upp á stálskeiðar í boði sveitarfélagsins. Hjálpaðu okkur að halda kostnaði niðri og umhverfinu hreinu með því að taka með þér skeið að heiman. Jafnvel skál líka.
Hátíðarsvæðin eru aðgengileg hjólastólum og vögnum frá göngustíg við miðbæjartún.
Hátíðin er haldin 26.–30. ágúst 2026 — síðustu vikuna í ágúst eins og venjulega. Dagskráin stendur í fimm daga, frá miðvikudegi til sunnudags.
Nei — það er frítt inn á alla viðburði hátíðarinnar fyrir alla fjölskylduna.
Á Hvolsvelli í Rangárþingi eystra á Suðurlandi. Viðburðir fara fram um allan bæ og miðpunkturinn er á miðbæjartúninu.
Súpuröltið er gönguferð um bæinn þar sem íbúar opna heimili sín og bjóða gestum upp á rjúkandi heimagerða kjötsúpu. Sjá nánar á súpurölt-síðunni.
Hvert hverfi og hver hluti sveitarfélagsins hefur sinn lit — skreyttu götuna þína, garðinn eða húsið í þínum lit. Litakortið sýnir hvaða litur tilheyrir þínu svæði.
Á Facebook og Instagram undir @kjotsupuhatid — og hér á vefnum, þar sem dagskráin er alltaf nýjust.