Myndir
Syngjum saman

Söngtextar

Textarnir við fjöldasönginn. Haltu símanum uppi og syngdu með.

Kjötsúpulagið 2026

Það er kjötsúpuhátið í dag á Hvolsvelli


Á staðnum verður 4 metra gestalisti

Það mæta kannski menn sem allir kannast við

En kannski mætir enginn nema Tesasynirnir


En Gústi Kristjáns kemur þar og kannski líka Gunnar Mar

Vinir Jenna kíkja við og fara örugglega á svið.

Enn er Kjartan víst að sýsla við stóru systur hans Jóns Gísla

Jónas Helga mætir ekki en allir aðrir sem ég þekki

Nema Finnbogi í Húsó og örugglega Birna skóló


Það er kjötsúpuhátíð í kvöld á Hvolsvelli

Á staðnum verður Einar Björns með stóra tjaldið

Þar mætir Ísólfur sem allir kannast við

En kannski mætir enginn nema Stuðlabandið


Svo mætir eflaust Anton Kári í fyrsta sinn á þessu ári

Palli Jóhanns og Böddi Bjarna verða örugglega þarna

Maggi Halldórs, Andri Már og Óskar Páls ef hann er klár

Addi Gauti verður hress en Árni Þór er alveg bless

Séra Kristján mun þar birtast ef að enginn er að giftast


Þetta er kjötsúpuhátið, x4


Ásta Halla kemur valla nema súpu hún fái að malla

Ómar Úlfur mætir þar en hættur er að fara á bar

Jónas Hreiðars kemur líka þegar götu´er búinn að skreyta

Hreimur verður vonandi þá enginn syngur volandi

Held að Simmi Menning mæti og þá verða líka læti

En fáið ykkur súpu..

↑ Aftur í lagalistann

Hvolsvöllur er bærinn minn

Ég man eins og það hafi gerst í gær

ég ólst hér uppá Hvolsvelli með stæl.

Þá þekktu allir allt og alla

allir voru velkomnir

Mömmur út um allt að kalla:

“Maturinn er tilbúinn”


Já Hvolsvöllur er bærinn minn

og Hvolsfjallið það skýlir honum vel.

Já Hvolsvöllur er bærinn minn

besta stað í heiminum ég tel.


Í Rangárþingi eystra búum við

hér er mannlíf gott og blómleg byggð.

Sveitarstjórar kom´og fara

Því margir vilja stjórna hér.

En alltaf þarf að spara og spara

enda gengur allt hér vel!


Já Hvolsvöllur....


Við höfum allt af öllu hér í sveit.

Káta bændur og kvikfénað á beit.

Löggu,slökkvi,sýsla og ríki

verkstæði af allri gerð

rakara og marga smiði.

Í Naflanum mér líður vel....:)


Já Hvolsvöllur......

↑ Aftur í lagalistann
Deila