Best skreytta gatan og skemmtilegasti garðurinn — bærinn skartar sínu fegursta og dómnefnd fer um göturnar.
Á meðan hátíðin stendur fer óháð dómnefnd úr öðru sveitarfélagi um bæinn og velur best skreyttu götuna og skemmtilegasta garðinn. Engin skráning — það eina sem þarf er að skreyta! Úrslitin eru kynnt á hátíðinni. Árið 2025 hlaut Króktúnið verðlaunin fyrir best skreyttu götuna og garðurinn að Öldubakka 1 var valinn sá skemmtilegasti.
Finndu litinn þinn á litakortinu og taktu þátt í að gera Hvolsvöll að litríkasta bæ landsins.